Um okkur
Einn Grænn er fyrirtæki sem stofnað var til að markaðssetja metan kerfi fyrir bensínvélar.
Fyrirtækið hefur hafið sölu á búnaði frá Slóvenska fyrirtækinu G-1 d.o.o. ( www.g-1.si )
Óhætt er að fullyrða að um afar góðan búnað er að ræða, enda með 7 ára ábyrgð.
Metangas er framleitt í landinu og er mun ódýrari orkugjafi en bensín sem og náttúruvænt.
Notkun á metani sem eldsneyti á bíla er löngu þekkt og hefur verið notað á Íslandi frá árinu 2000.
Varðandi umhverfisáhrif metans í samanburði við brennslu á bensíni og diselolíu vísa ég til heimasíðu framleiðanda metans á Íslandi.
Bílar sem við erum búnir að uppfæra.
BMW 540 x1
BMW 730 x1
BMW X3 x1
Cadillac Escalade x7
Caravan x1
Chevi Tahoo x1
Chevrolet Lacetti x1
Chevrolet Silverado x2
Chevrolet Suburban x7
Chrysler Town & Country x3
Dodge Dakota x1
Dodge Durango x5
Dodge Power wagon x1
Dodge Ram 1500 x5
Ford Econoline x1
Ford Escape x6
Ford Expedition x6
Ford Explorer Sport Track x2
Ford Explorer x11
Ford F150 x26
Ford Focus x1
Ford Freestyle
GMC Envoy x2
GMC Yukon Denali x2
Grand Cherokee x11
Honda Accord x2
Honda CRV x1
Hunday x1
Hunday Tuscan x1
Hyundai Getz x1
Hyundai Santa Fe x1
Lexus IS 200 x1
Lexus RX 300 x6
Lincoln Continental x1
Lincoln Mark LT x1
Lincoln Navigator x2
M.Benz G 500 x1
Mazda 6 x1
Nissan Frontier x1
Nissan Titan x2
Opel Astra x2
Peugeot 306 x1
Peugeot 407 x1
Renult Megane x1
Skoda Octavia x2
Subaru Forester x1
Subaru impreza x1
Subaru Legacy x2
Subaru Outback x1
Toyata Tacoma x2
Toyota Avensis x6
Toyota Corolla x2
Toyota Hiace x1
Toyota Land cruiser 100 x11
Toyota Previa x1
Toyota Rav 4
Toyota Tundra x3
Toyota Yaris x2
Tuscan x1
Volvo XC70 x2
VW Touareg x2
VW Transporter x1
Metan breyting ökutækis
Það eru nokkrir bónusar við að breyta bíl fyrir Metan fyrir utan þann augljósa sem er stórkostlegur sparnaður í eldsneytiskostnaði eða tæp 50% eins og staðan er í dag. Bílarnir eru eftir sem áður bensínbílar en með Metanbúnaðinn sem aukabúnað.
20% fást endurgreidd af kostnaði við breytingu en þó að hámarki 100.000,- (af 6 ára og yngri)
Bifreiðagjöld fara í lágmark sem er 10.000,- kr á ári. Umtalsverð lækkun þar á þyngri bílum eða í kringum 60.000,- kr á ári
Og síðast en ekki síst fá allir Metan breyttir bílar, fríar 90 mín í öll gjaldskyld stæði. Til þess þarf sérstaka bílastæðaklukku sem fæst hjá Bílastæðasjóð
Breyta bílnum hjá viðurkenndu verkstæði.
Eftir breytingu fær maður í hendurnar vottorð frá verkstæðinu.
Fá bílinn skráðann sem bensín/metan bíl.
Þá þarf að fara með bílinn í skoðun og leggja fram vottorð frá verkstæði ásamt vigtarseðli. Vottorðið leggst inn hjá skoðunarstöð, gott að fara í Athugun/Frumherja Klettagörðum þeir þekkja þetta og þar við hliðina er einnig viðurkennd vigtarstöð. Ath með eigin þyngd versus leyfða heildarþyngd.
En muna að fá afrit af Vottorðinu stimplað af Frumherja til staðfestingar kútastærð að lágmarki 78 litrar því þetta vottorð þarf að leggja inn þegar sótt er um endurgreiðslu hjá Tollinum.
Endurgreiðsla.
Til að fá endurgreiðsluna þarf að fylla út form sem heitir E-20 og finnst á síðu tollsins, www.tollur.is finnst neðarlega hægra megin, undir „eyðublöð“ og er í 5 riti.
Það, útfyllt, er prentað út og lagt inn hjá Tollinum, 5. Hæð í Tryggvagötu móttaka skjala ásamt afritinu af stimplaða vottorðinu frá skoðunarstöð
Einnig þarf, og hér er ákveðinn tvíverknaður í gangi, staðfestingu frá Umferðarstofu um að ökutæki hafi verið breytt fyrir Metan og faggilt skoðunarstöð tekið verkið út og staðfest
Ekki gleyma svo afriti af reikning en endurgreiðslan miðast við 20 % af heildarupphæð, þó ekki hærra en 100.000,- og miðast við 6 ára og yngri bíla. Miðað við skráningardag skilst mér.
Þetta endurgreiðslu ferli gæti tekið ca 3 daga.
Nú þegar bíllinn er skráður bensín/metan bíll, þá detta bifreiðagjöld niður í 10.000,- ári og þá er ökutækið einnig orðið svokallað Visthæft ökutæki og má því leggja hvar sem er í gjaldskyld stæði og fá frítt í 1,5 klst. Þá er bílastæða klukkan einfaldlega stillt á tímann sem lagt er, og þá getur vörðurinn séð hversu mikið er eftir.
Bara plúsar við að breyta, og hægt að breyta nánast öllum bensínbílum.



