Algengar spurningar

Hvað geri ég ef ég kemst ekki á metan stöð?
Þá fer bíllinn sjálfkrafa yfir á bensin

Hvar í bílnum er metan tankurinn?
Honum er komið fyrir í farangursrými eða undir bifreiðinni

Er hætta á að metan tankurinn springi við árekstur?
Nei.

Hvað spara ég mikið með að fá mér G1 innsprautunarkerfi í bílinn minn?
Breytilegt milli bifreiða ath sjá reiknivél.

Hver er kostnaðurinn við að breyta mínum bíl í metan?
Það er breytilegt eftir bílum. Vinsamlegast sendið okkur fyrirspurn á gretar@g1.is

Er boðið upp a fjármögnun á breytingunum?
Já það er hægt að fá fjármögnun, til að fá frekari upplýsingar um það er bent á að hafa samband með tölvupósti á netfangið gretar@g1.is

Hvar fylli ég á bílinn?
Það eru 2 afgreiðslustöðvar, N1 Bíldshöfða 2 og að Tinhellu í Hafnarfirði.

Bíddu er metan ekki gróðurhúsalofttegund?
Jú, hún er það en við bruna verður nánast ekkert eftir af skaðlegum efnum fyrir þig eða umhverfið.

Sparar þetta gjaldeyri fyrir þjóðarbúið?
Þetta sparar gríðarlega fyrir þjóðarbúið eða um það bil 10.000 evrur á bíl.

Minkar krafturinn í bílnum við breytinguna?
Þegar hann er keyrður á metan minkar afl vélar um 10-20% en ef þú þarft meira afl ýtir þú á einn takka og ert þá kominn á bensín með fullt afl.

Hefur veðurfar áhrif á gang bílsins?
Bíllinn startar upp á bensíni og hitar sig upp í 60° og skiptir sér síðan sjálfkrafa yfir á metan.

Hversu langan tíma tekur það að borga sig upp?
Sjá reiknivél

Hvað tekur langan tíma að breyta bíl?
2 til 3 dagar

Hvað kosta breytingarnar?

4 cl bíll frá 395.000 kr með VSK fyrir standard ísetningu m.v. 1 tank.

6 cl bíll frá 495.000 kr með VSK fyrir standard ísetningu m.v. 1 tank.
6 cl bíll frá 595.000 kr með VSK fyrir standard ísetningu m.v. 2 tanka.

8 cl bíll frá 595.000 kr með VSK fyrir standard ísetningu m.v. 1 tank.
8 cl bíll frá 695.000 kr með VSK fyrir standard ísetningu m.v. 2 tanka.

Hver er meðal þyngd tankana?
60-70kg (minna en meðal farþegi)

Er hægt að breyta öllum bílum?
Við getum breytt öllum bílum sem ekki eru twin turbo.

Fylgir einhver áhætta við áfyllingu?
Nei hún er sjálfvirk eftir að þú tengir saman svo þú þarf engar áhyggjur að hafa.

Hversu langan tíma tekur að fylla á tankinn?
Það tekur að meðaltali 3-5 mín.

Er ábyrgð á breytingunum?
Við erum með 7ára ábyrgð frá framleiðanda.

Þarf að láta skoða bílinn sérstaklega eftir breytingar?
Eftir að bílnum er breytt fer hann í skoðun sem greitt er fyrir,
síðan er þetta skoðað samhliða almennri bílaskoðun.

Verður frítt að leggja í gjaldstæði?
Eftir breytinguna er bíllinn þinn „Grænn“ og nýtur sömu forréttinda og aðrir grænir bílar.

Er hægt að færa kerfið milli bíla?
Ef bíllinn þinn tjónast,úreldist eða að þú vilt skipta þá er lítið mál að panta tíma og láta færa
kerfið milli bíla.

Er hægt að kaupa kerfið og setja það í sjálfur?
Nei, til þess þarf sérkunnáttu og einnig eru það skýr fyrirmæli framleiðenda að eingöngu
viðurkenndir aðilar sjái um ísetningu.

Notar bíllinn bensín líka?
Bíllinn startar upp á bensíni og er á því þar til hann nær 60° (er orðinn volgur) þá skiptir
hann sér sjálfkrafa yfir á metan.

Er hægt að slökkva á kerfinu?
Já það er rofi í mælaborðinu sem þú getur notað til að stýra kerfinu.

Follow us Facebook Twiter RSS